Tix.is

Þjóðleikhúsið

Event info

Nýtt íslenskt leikrit um ólíka menningarheima undir einu þaki, þrána eftir því að brjóta niður múra, að tilheyra og mynda tengsl.

Þrjú systkini koma saman við dánarbeð föður síns. Um leið og þau neyðast til að takast á við hina nýju stöðu reyna þau að gera upp gömul mál og berja í brestina sem komnir eru í fjölskyldutengslin. En það er hægara sagt en gert. Yngri bróðirinn, Hrafn er heyrnarlaus, heyrandi tvíburasystir hans Ugla talar reiprennandi táknmál en það gera hvorki faðirinn né eldri bróðirinn Valdimar. Samband systkinanna við föður sinn er því gjörólíkt og viðbrögð þeirra nú þegar þau standa á þessum krossgötum ófyrirsjáanleg eftir því.

Og það er þá sem þau komast að dálitlu sem snýr lífi þeirra alveg á hvolf.