Tix.is

Þjóðleikhúsið

Event info

Áleitið samtímaverk eftir eitt þekktasta og áhrifamesta leikskáld Breta

Í fyrsta sinn setur Þjóðleikhúsið upp leikrit eftir Caryl Churchill, eitt virtasta leikskáld Bretlands, og munu margir fagna því. Churchill (f. 1938) er í hópi framsæknustu leikskálda samtímans, og er hún ekki síst þekkt fyrir afar áhugaverðar tilraunir með form og innihald. Churchill hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, sem gjarnan fjalla um áleitin viðfangsefni úr samtímanum, femínísk málefni, kynjapólitík, vald og misbeitingu þess. Verk hennar hafa verið sett upp í helstu leikhúsum Bretlands og víða um heim.

Í verkinu Ást og upplýsingar, sem hlaut mikið lof þegar það var frumflutt í Royal Court leikhúsinu í London árið 2012, kryfur Caryl Churchill samtíma okkar af óvægni. Hún skoðar með skemmtilegum og frumlegum hætti hina djúpstæðu löngun okkar til að upplifa nánd og vera elskuð, í heimi sem oft og tíðum virðist einmitt koma í veg fyrir einingu. Brugðið er upp skörpum skyndimyndum af mannlífinu, í hjartnæmu, tragísku og fyndnu verki.

Þýðandi verksins er hin virta og vinsæla skáldkona Auður Ava Ólafsdóttir og leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, sem hefur tvívegis hlotið Grímuverðlaunin sem leikstjóri ársins.

Höfundur: Caryl Churchill

Þýðing: Auður Ava Ólafsdóttir

Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir

Leikmynd: Daniel Angermeyer