Tix.is

Þjóðleikhúsið

Event info

Óður til lífsins, listarinnar og ástarinnar! Glænýr söngleikur sem hefur slegið rækilega í gegn og lætur engan ósnortinn!

Sem á himni er einstaklega heillandi splunkunýr söngleikur sem leikur á allan tilfinningaskalann. Ægifögur tónlist, litríkar og skemmtilegar persónur og hrífandi saga hafa nú þegar heillað fjölda áhorfenda erlendis, og nýjar uppsetningar á þessum frábæra söngleik eru væntanlegar víða.

Athugið að miðasala ekki enn hafin á þessa sýningu.
Hægt að kaupa hana sem hluta af Leikhúskorti Þjóðleikhússins.

KAUPA LEIKHÚSKORT

Verkið gerist í litlu samfélagi á landsbyggðinni þar sem allir þekkja alla, og hver hefur innsýn í annars gleði og sorgir. Þegar heimsfrægur hljómsveitarstjóri, á hátindi ferils síns, sest óvænt að í þorpinu til að draga sig út úr skarkala heimsins þykir ýmsum tilvalið að fá hann til að stýra kirkjukórnum. Þessi maður á sér sársaukaþrungin leyndarmál, en þegar tónlistin fer að óma af nýjum og áður óþekktum krafti í litla samfélaginu byrjar að losna um margt og lífið tekur óvænta stefnu. Hrífandi saga um hin sönnu verðmæti í lífinu, gildi vináttunnar og ástina.

Söngleikurinn er byggður á geysivinsælli samnefndri sænskri bíómynd sem tilnefnd var til Óskarverðlauna árið 2004.