Víkingur R. og KA mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla laugardaginn 16.september kl.16:00 á Laugardalsvelli
Víkingur R. hóf leik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Á leið sinni í úrslitin sigruðu þeir Magna, Gróttu, Þór og KR. KA hóf einnig leik í 3.umferð keppninnar og unnu á leið sinni Uppsveitir, HK, Grindavík og Breiðablik.
Víkingur R. er ríkjandi bikarmeistari en KA hefur aldrei orðið bikarmeistari. Þeir léku síðast til úrslita árið 2004.
Miðaverð á leikinn er 2.000kr fyrir fullorðna og 500kr fyrir 16 ára og yngri.
Hvetjum alla til þess að mæta á völlinn