Tix.is

ÍD

Event info

Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í nóvember 2016 dansveislu í tilefni 100 ára afmælis dadaismans.

Dadaismi spratt upp úr vitfirringu fyrri heimsstyrjaldar og var meginmarkmið hans að skapa fjarstæðukennd verk sem hristu upp í hugmyndum fólks um tilgang og virði listarinnar. Dadaismi boðaði nýtt upphaf með því að rísa upp gegn ríkjandi hefðum í list og lífi.

Í ár er víðsvegar fagnað stórafmæli dadaismans og mun dansflokkurinn taka þátt í þeim fagnaði með því að frumsýna nýtt dansverk eftir Grímuverðlaunahafana Ingu Huld Hákonardóttur og Rósu Ómarsdóttur við frumsamda tónlist Hermigervils. Í Da Da Dans munu danshöfundarnir skoða mismunandi leiðir dadaismans og velta fyrir sér hvort þær eigi enn við í dag.

Inga Huld og Rósa eru rísandi stjörnur í dansheiminum og hlutu Grímuverðlaunin sem Danshöfundar ársins 2016 fyrir verk sitt The Valley sem var sýnt á Reykjavík Dance Festival 2015 við mikinn fögnuð.