Skip to content

Tix.is

ÍD

  • From 24 October
  • To 28 December
  • 19 dates

Ticket price:11.900 - 12.900 kr.

Event info

Ellý

Sýningar hefjast: 6. september

Salur: Stóra svið

Elly er komin aftur! Í takmarkaðan tíma stígur Katrín Halldóra aftur á Stóra sviðið sem Elly Vilhjálms í rómaðri sýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir handriti Gísla og Ólafs Egils Egilssonar. Sýningin sló á sínum tíma öll met og naut fádæma vinsælda. Nú snýr Elly aftur vegna fjölda áskorana! Hún bjó yfir óræðri dulúð og töfraði áhorfendur með söng sínum og leiftrandi persónuleika; túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin silkimjúk og hlý. Líf Ellyjar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara því hún var dul og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Í þessari mögnuðu sýningu fetar Katrín Halldóra í fótspor einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar og syngur sig inn í hjörtu áhorfenda sem aldrei fyrr.

Höfundur: Gísli Örn Garðarsson

og Ólafur Egill Egilsson

Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson

Tónlistarstjóri: Guðmundur Óskar Guðmundsson

Sviðshreyfingar: Selma Björnsdóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Stefanía Adolfsdóttir

Lýsing/Umsjón með enduruppsetningu:

Þórður Orri Pétursson/Pálmi Jónsson

Leikgervi/Umsjón með

enduruppsetningu: Árdís

Bjarnþórsdóttir/Elín S. Gísladóttir

Hljóð/Umsjón með enduruppsetningu: Garðar Borgþórsson/Þorbjörn Steingrímsson

Leikarar:

Björgvin Franz Gíslason

Hjörtur Jóhann Jónsson

Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Katrín Halldóra Sigurðardóttir

o.fl.

Hljómsveit:

Aron Steinn Ásbjarnarson

Guðmundur Óskar Guðmundsson

Hjörtur Ingvi Jóhannsson

Örn Eldjárn

Ofl.