Tix.is

Hljómahöll

Event info

7. febrúar Gunnar Þórðarson
Það er óhætt að kalla Gunnar Þórðarson lagahöfund Íslands en hann vakti fyrst á sér athygli með Hljómum sem urðu leiðandi í íslenskri popptónlist. Á sjöunda og áttunda áratug aldarinnar var hann í helstu hljómsveitum þeirra ára; Hljómum, Trúbroti og Lónlí Blú Bojs. Dægurlög hans eru á sjöunda hundrað og vakti hann síðast verðskuldaða athygli með óperu sinni Ragnheiði sem sló í gegn.
 
7. mars Elly Vilhjálms
Fáar íslenskar söngkonur teljast hafa komist á það stig að vera kallaðar söngdívur í gegnum tíðina en Elly Vilhjálms er sannarlega ein þeirra. Henni skaut upp á stjörnuhimininn við upphaf sjöunda áratugarins og bar höfuð og herðar yfir aðrar söngkonur næstu árin með túlkun sinni á dægurlögum sem mörg hver hafa með tímanum orðið klassísk. Hún hóf ung að syngja með hljómsveitum og á æviferli sínum söng hún um 100 lög inn á plötur, þar af allnokkur með Vilhjálmi bróður sínum.

4. apríl Jóhann G. Jóhannsson
Jóhann G. Jóhannsson telst án efa meðal stærstu nafna í íslenskri tónlistarsögu en hann lék og söng með mörgum af þekktustu hljómsveitunum á uppgangsárum hippa- og rokktímans auk þess sem hann átti farsælan sólóferil, aukinheldur er hann meðal þekktustu lagahöfundum þjóðarinnar og skipta lög hans hundruðum. Hann stofnaði hljómsveitina Óðmenn sem söngvari og bassaleikari en á ferlinum lék hann með hljómsveitum á borð við Straumar, Musica Prima, Tatarar, Náttúra og Póker.

Tónleikaröðin Söngvaskáld á Suðurnesjum verður haldin í síðasta sinn árið 2019 með þrennum tónleikum í Hljómahöll en markmiðið er að vekja athygli á ríkum tónlistararfi Suðurnesjamanna á afslöppuðum stofutónleikum þar sem saman fara ljósmyndir, sögur og tónlist.

Þau sem standa að baki tónleikaröðinni eru þau Dagný Maggýjar handritshöfundur og kynnir, Arnór B. Vilbergsson organisti í Keflavíkurkirkju og Elmar Þór Hauksson söngvari.

Þau segja tónlistarröðinni hafa verið vel tekið frá upphafi en hún hófst árið 2016 og hefur fjallað um níu söngvaskáld fyrir fullu húsi.

„Þetta hefur verið skemmtilegt verkefni og frábært hvað Suðurnesjamenn hafa tekið því vel en það er óhætt að segja að við séum komin með okkar fastagesti sem kaupa miða á alla tónleikana á hverju ári. En nú er svo komið að við höfum fjallað um helstu söngvaskáldin svona fyrir utan þá sem eru starfandi í dag svo við teljum að nú sé tímabært að hætta, nema annað komi í ljós” segja þau og hlægja.
Verkefnið hefur vakið athygli og var valið til kynningar á hugmyndadögum Rúv á síðasta ári sem mögulegt dagskrárefni í útvarpi. „Það væri gaman ef af því yrði enda höfum við tekið upp alla tónleikana með það fyrir augum, enda er hér um að ræða mikilvæga sögulega heimild þar sem við höfum tekið viðtöl við söngvaskáldin og fengið að nota myndir úr einkasöfnum þeirra. Þetta efni er því hvergi annars staðar til.”
Söngvaskáldin sem fjallað verður um í ár eru Gunnar Þórðarson 7. febrúar, Ellý Vilhjálms 7. mars og Jóhann G. Jóhannsson 4. apríl. Tónleikarnir verða að sögn tónleikahaldara með svipuðu sniði og áður þar sem áhersla er lögð á notalega samverustund. „Við eigum svoldið erfitt með að taka okkur alvarlega og vera í þessu virðulega tónleikaformi, enda finnst okkur miklu betra að við skemmtum okkur líka, enda smitar það sér til áhorfenda sem oft hafa verið virkir þátttakendur á þessum tónleikum í óvæntum uppákomum.”
Þeir sem kaupa miða á alla þrenna tónleikana fá 15% afslátt á miðaverðinu sem er kr. 4.900 en til að fá þetta tilboð þarf að kaupa miðana í afgreiðslu Hljómahallar.