Tix.is

Hljómahöll

Event info

Árlegir tónleikar Vox Felix verða með stærra sniði þetta árið! Eru þið ekki spennt? Við erum það líka! Við hlökkum svo mikið til að syngja ykkur og ekki síst okkur inn í jólin ásamt fríðu föruneyti.

Tónleikarnir okkar verða í Hljómahöll, þriðjudaginn 4.desember kl. 20:00. Með okkur í ár verður fullskipuð hljómsveit auk þess sem við fáum til okkar jólagest, sem er enginn annar en tónlistarmaðurinn Jón Jónsson.

Við lofum auðvitað stuði og stemningu og lagalistinn er með fjölbreyttu sniði. Þar er að finna gömul góð jólalög í bland við ný og öll auðvitað útsett af stjórnandanum okkar Arnóri Vilbergssyni.

Eins og fyrri ár látum við gott af okkur leiða og 500 kr. af hverjum seldum miða renna til samtakanna „Lítil hjörtu“. Samtökin hafa það að markmiði að gleðja börn í efnalitlum fjölskyldum á jólum og öðrum tyllidögum.

Aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða svo endilega tryggið ykkur miða sem fyrst.

Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll!

Með kærri jólakveðju, Vox Felix


Um Vox Felix

Hópurinn samanstendur af einstaklingum á aldrinum 16 til 35 ára. Nafnið Vox Felix þýðir í raun Hamingjuraddirnar og var kórinn stofnaður árið 2011. Kórinn er samstarfsverkefni kirkjusóknanna á Suðurnesjum og kemur fram við athafnir a.m.k. einu sinni á ári í hverri kirkju.

Þess á milli tekur hópurinn þátt í margskonar verkefnum en haustið 2017 tók hópurinn t.d. þátt í þáttaröðinni Kórar Íslands þar sem 20 íslenskir kórar öttu kappi. Þar lentu þau í 3. sæti. Hér að neðan má sjá upptökur úr þáttunum ásamt hlekk á Facebook síðu hópsins.

Vinur í raun (úrslitaþáttur): http://www.visir.is/k/clp58679
Mundu mig (undanúrslit): http://www.visir.is/k/clp58249
Ég lifi í draumi (1.þáttur): http://www.visir.is/k/clp57903 
Facebook síða hópsins: https://www.facebook.com/Vox-Felix-1509571315958424/