Tix.is

Harpa

Event info

Framundan er sannkölluð tónlistarveisla í Silfurbergi Hörpu þann 9. Apríl næstkomandi þegar Skonrokksliðar stíga á svið. Sigga Guðna og Stefanía Svavars verða með okkur, ásamt Bigga „Gildru“ Haralds, Stebba Jak og Magna okkar Ásgeirs. Lofum stórkostlegri skemmtun og geggjuðum tónleikum. Vorkvöld í Reykjavík, Alone, Paradise City, Whole Lotta Love og Seinna Meir svo eitthvað sé nefnt ?? Uppskrift að frábæru kvöldi.

SkonRokkshópinn í ár skipa:
Magni Ásgeirsson – söngur, Birgir Haraldsson – söngur,  Stefán Jakobsson – söngur, Stefanía Svavarsdóttir – söngur og Sigríður Guðnadóttir – söngur.

Birgir Nielsen – trommur, Einar Þór Jóhannsson – gítar, Sigurgeir Sigmundsson – gítar Ingimundur B. Óskarsson – bassi, Birgir Þórisson – hljómborð.

Sem sagt þéttur og hæfileikaríkur hópur sem á það sameiginlegt að elska ROKK þar sem töfrararnir verða til og töffararnir líka.