Tix.is

Harpa

Event info

Valdimar Guðmundsson þarf vart að kynna en hann hefur verið einn þekktasti og dáðasti söngvari landsins undanfarin áratug. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur víða gert garðinn frægan og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli

Nú hefur Valdimar sett saman í stórkostlega hljómsveit með valinn mann í hverri höfn sem hefur fengið nafnið Fjölskyldan. Mætti því segja að Valdimar og Fjölskylda bjóði til hátíðartónleika í Silfurbergi þann 12. desember þar sem engu verður til sparað og leikin verða uppáhalds jólalög Valdimars í bland við eigið efni með hátíðarbrag.

Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum tónleikum, sem enginn ætti að missa af.

Miðasala hefst 16.september kl. 10

Umsjón: Faxaflói ehf