Tix.is

Harpa

Event info

Það verður sannkölluð gleði- og friðarjólastemning í Hörpu 13. desember næstkomandi þegar Pálmi Gunnars ætlar að syngja inn jólin á einum fallegustu jólatónleikum landsins. Pálmi mun leika öll sín bestu og vinsælustu jólalög ásamt nokkrum skemmtilega óvæntum aukalögum.

Gleðin og léttleikinn verða að sjálfsögðu til staðar ásamt dassi af jólaanda.

Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril að baki og hann.

Pálma til aðstoðar verða þeir:
Þórir Úlfarsson: Hljómsveitarstjórn og píanó
Gunnlaugur Briem: Trommur
Pétur Valgarð Pétursson: Gítar
Helgi Reynir Jónsson: Gítar og hljómborð
Auk strengjasveitar

Umsjón: ARG viðburðir