Fjöldi kórsöngvara og úrval einleikara ásamt Íslenskum strengjum koma fram á tónleikum Sígildra sunnudaga með úrvali einleiksverka, laga og útsetninga eftir Johann Sebastian Bach. Á efnisskrá er meðal annars nýstárleg útsetning á Air á G-streng fyrir barnakór og hljómsveit, glæsileg einleiksverk úr smiðju Bachs og hið gullfallega Slá þú hjartans hörpustrengi í flutningi 130 barna. Hljómsveitarstjóri og kynnir er Ólöf Sigursveinsdóttir
Einleikarar
og einsöngvari:
Einar
Bjartur Egilsson, píanó
Chrissie
Telma Guðmundsdóttir, fiðla
Steinar
Kristinsson, trompet
Íris
Torfadóttir, fiðla
Þorsteinn
Freyr Sigurðsson, tenór
Kórar:
Barnakór Seltjarnarneskirkju
og Drengjakór Neskirkju
Stjórnandi: Þorsteinn Freyr Sigurðsson
Barnakór Hólabrekkuskóla í Breiðholti
Stjórnandi: Diljá
Sigursveinsdóttir
Barnakór
Neskirkju
Stjórnandi: Erla Rut
Káradóttir