Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú eins og við þekkjum hana flest mun fagna 70 ára afmæli sínu með stórtónleikum í Eldborg Hörpu þann 7.september næstkomandi.
Hennar fallega og kraftmilka rödd hefur svo sannarlega heillað marga í gegnum tíðina og ekki skemmir fyrir hennar geislandi framkoma og lífglaða viðhorf.
Hún mun fara yfir ferilinn allt frá Spilverki þjóðann til söngs Næturdrottningarinnar úr Töfraflautu Motzarts og allt þar á milli.
Þetta eru tónleikar sem þú mátt alls ekki missa af.
Töfraflautan / Die Zauberflöte: "Der Hölle Rache" https://www.youtube.com/watch?v=c6owAsUNFSA
Tónlistarstjóri
Jón Ólafsson
Söngur
Diddú ásamt góðum gestum.