Skip to content

Tix.is

Harpa

  • Sun 25 May 2025 at 02:30 PM

Free

Event info

Raddbandfélag Reykjavíkur syngur í Hörpuhorni. Lagavalið samanstendur af lögum af vortónleikum Raddbandafélagsins sem haldnir verða síðar sama dag í Háteigskirkju og má þar heyra Bítlalög, Barbershop, íslensk þjóðlög, klassísk kórlög og fleira. Stjórnandi er Egill Gunnarsson.

Hvar: Hörpuhorn
Hvenær: Sunnudag, 25. maí kl. 14:30 - 15:00

Raddbandafélag Reykjavíkur var stofnað upp úr kvartettinum „Góðir í boði“ árið 2021 og telur nú 1fimmtán meðlimi. Raddbandafélagið er þekkt fyrir létta og skemmtilega efnisskrá og líflega sviðsframkomu. Efnisskráin í ár spannar allt frá Bítlalögum og barbershop til klassískra íslenskra kórlaga. Kórinn tók þátt í námskeiði á vegum King’s Singers í Hörpu árið 2015. Hann hefur ferðast nokkrum sinnum til útlanda og hreppti m.a. 3. sæti í alþjóðlegri karlakórakeppni í Cornwall á Englandi árið 2022. Egill Gunnarsson hefur stjórnað Raddbandafélaginu frá árinu 2011.

Tónleikarnir eru liður í vortónleikaröð Félags íslenskra kórstjóra í Hörpuhorni. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.