Skip to content

Tix.is

Harpa

  • Sun 18 May 2025 at 04:00 PM

Free

Event info

Skátakórinn kemur fram í Hörpuhorni og flytur fjölbreytta dagskrá; norræn þjóðlög, íslenskt popp, skátalög og erlent popp. Stjórnandi kórsins er Gillian Haworth.

Hvar: Hörpuhorn
Hvenær: Sunnudag 18. maí kl. 16 - 16:30

Skátakórinn hefur starfað óslitið frá árinu 1998. Kórinn hefur verið fastur punktur í hátíðarhöldum skáta um land allt, komið fram á mótum og mannfögnuðum og farið í tónleikaferðir innanlands og utan. Sérstaða kórsins eru skátasöngvarnir og hefur mikill metnaður verið lagður í varðveislu þeirra með því að kosta útsetningar, upptökur og útgáfu á geisladiskum sem eru verðmætar heimildir um lagahefð og söngmenningu skáta. Auk skátasöngvanna hefur kórinn spreytt sig á margvíslegri tónlist og spannar efnisskráin jafnan fjölbreytt lagaval. Núverandi stjórnandi kórsins er Gillian Haworth.

Tónleikarnir eru liður í vortónleikaröð Félags íslenskra kórstjóra í Hörpuhorni. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.