Tix.is

Event info

Miðasala á heimaleiki Víkings í Pepsi Max deildinni sumarið 2020 er hafin. Eins og undanfarin ár eru nokkrir möguleikar í boði. Gull ársmiði þar sem Víkingsborgari og einn kaldur fylgja með á heimaleikjum í Pepsi Max deild karla, Ársmiði sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum í Pepsi Max deild karla, VIP ársmiði þar sem boðið er upp á veitingar í hátíðarsal fyrir leik og í hálfleik og Ársmiði á heimaleiki meistaraflokks kvenna í 1. deild.

Eins og síðasta sumar munum við einnig bjóða upp á sérstakt verð fyrir þau sem eru fædd árið 1995 og síðar, sem geta fengið ársmiða á einungis 7.490 krónur í forsölu.

Félagar í Víkingasveitinni hafa möguleika á að uppfæra sig með einni greiðslu, sem er mismunandi eftir því hvert mánaðarlegt framlag er hverju sinni. Þeir sem greiða mánaðarlega 2.500 eða 3.500 krónur geta uppfært sig í Gull ársmiða fyrir 12.500 kr.
Þeir sem vilja uppfæra sig í VIP ársmiða geta gert það með greiðslu upp á 10.000 til 40.000 kr., eftir því hvert mánaðarlegt framlag þeirra er. Forsala ársmiða stendur til 12. júní. Almennt miðaverð á heimaleiki Víkings verður kr. 2.000 á leik.

U16 - 25 kort gildir fyrir gildir á alla 11 heimaleiki Víkings í Pepsi Max deild karla 2020. Þeir sem fæddir eru 1995 til 2004 býðst að kaupa þetta kort.

Verð 8.900 kr. – Forsöluverð 7.490 kr.

Gullmiði gildir á alla heimaleiki Víkings í Pepsi Max deild karla 2020. Víkingsborgari og einn kaldur fylgir með.
 
Verð 26.990 kr. – Forsöluverð 23.990 kr.  
 
Ársmiði gildir á alla 11 heimaleiki Víkings í Pepsi Max deild karla 2020.
 
Verð 15.990 kr. – Forsöluverð 13.990 kr.    
   
VIP miði gildir á alla heimaleiki Víkings í Pepsi Max deild karla og veitir auk þess aðgang í Hátíðarsalinn klukkustund fyrir leik og í hálfleik.

Fyrir leik er boðið upp á léttar veitingar og bjór frá Víking. Í hálfleik er boðið upp á bjór og kaffi. 

Verð 69.990 kr. – Forsöluverð 64.990 kr.
 
Ársmiði 1. deild kvenna gildir á alla heimaleiki meistaraflokks kvenna í 1. deild kvenna árið 2020. Miðaverð á 1. deild kvenna verður 1.500 kr.

Verð 11.990 kr. – Forsöluverð 9.990 kr.