Tix.is

Event info

Föstudaginn 13. mars fagnar vefiðnaðurinn á Íslandi vel unnum störfum á síðasta ári og verðlaunar þá sem þykja hafa skarað fram úr. Að því loknu sleppum við af okkur beislinu, tölum bransa, förum á trúnó og dönsum við taktfasta tóna fram eftir kvöldi.

Kynnar kvöldsins á Íslensku vefverðlaununum eru engir aðrir en þeir Auðunn Blöndal og Steindi Jr.

Þessir frábæru grínhöfundar og -skemmtikraftar eru okkur íslendingum vel kunnugir. Þeir einir og sér eru næg ástæða til að hlakka til kvöldsins.

Gleðin hefst kl 19:00 með mat og fordrykk. Að verðlaunafhendingunni lokinni er borinn fram Popup matur og loks upphefst partí sem stendur fram á nótt!

Miðasala:
ATHUGIÐ: Vinsamlegast athugið að ókeypis er inn á Íslensku vefverðlaunin fyrir meðlimi SVEF en þeir þurfa samt sem áður að fara í gegnum kaupferlið á Tix til að fá sinn miða. Ef miði er keyptur á „meðlimaverði“ þá verður viðkomandi skráður í félagið, sé hann ekki félagi fyrir, og rukkaður um árgjald (14.900 kr).

Hópar
Hægt verður að taka frá hringborð fyrir fyrirtæki með marga gesti. Hvert borð tekur 8 manns. Borðapöntun fylgja ekki miðar, miða verður alltaf að bóka á tix.is. Til að panta borð fyrir hópa skal senda póst á bokhald@svef.is með subjectinu #pant


Vín er val
Við tökum við pöntunum en Hilton Nordica rukkar fyrir.
Hægt er að velja um eftirfarandi vínpakka:
A) 2 léttvínsflöskur (hvítt/rautt er val) og 6 bjórar (Egils gull) 17.500 kr.
B) 3 léttvínsflöskur (hvítt/rautt er val) 17.500 kr.
C) 16 bjórar (Egils gull) 16.000 kr.
D) 6 glös af Moscow Mule 9.000 kr.
Til að panta vín fyrir hópa skal senda póst á bokhald@svef.is með subjectinu #pant. Nauðsynlegt er taka fram: Fyrirtæki / kt., fjölda starfsfólks og símanúmer.


---


Íslensku vefverðlaunin fyrir árið 2019 verða veitt í 13 flokkum en fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vefiðnaðurinn á Íslandi kemur að.

Flokkar sem hægt er að senda inn í:
Fyrirtækjavefur ársins (lítil fyrirtæki)
Fyrirtækjavefur ársins (meðalstór fyrirtæki)
Fyrirtækjavefur ársins (stór fyrirtæki)
Markaðsvefur ársins
Söluvefur ársins
Efnis- og fréttaveita ársins
Opinberi vefur ársins
Vefkerfi ársins
Stafræn lausn ársins
Tæknileg úrlausn ársins
App ársins
Samfélagsvefur ársins
Gæluverkefni ársins

Dómnefnd veitir þar að auki þrenn auka verðlaun fyrir vefi sem skara fram úr:
Framúrskarandi snjall (mobile) vefur
Hönnun og viðmót
Vefur ársins

Að lokum verður veitt viðurkenning fyrir aðgengilegasta vefinn í samstarfi við Siteimprove.