Flamenco sýningar verða haldnar víða um land dagana 16.-25. apríl.
Ólíkir menningarheimar sameinast í eldheitum dansi, tilfinningaþrungnum söng og suðrænum gítarleik.
Tilefni sýninganna er útgáfa fyrstu íslensku Flamenco plötunnar El Reino de Granada sem gefin var út af gítarleikaranum Reynir del Norte. Reynir býr í Granada, Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari. Síðustu ár hefur hann stundað það að flytja inn spænska Flamenco listamenn til að kynna þetta magnaða listform fyrir Íslendingum.
Verkefnið Flamenco á Íslandi! er nú að fara í gang í þriðja skiptið.
Að auki verður haldið Flamenco dansnámskeið í Dansverkstæðinu dagana 20.-22. apríl.
Gamla Kaupfélagið - 16. apríl kl 20
Hótel Selfoss - 17. apríl kl 20
Alþýðuhúsið Vestmannaeyjum - 18. apríl kl 20
Græni Hatturinn - 23. apríl kl 20
Gamla Bíó - 24. apríl kl 21
Hvanneyri Pub - 25. apríl kl 20
Fram koma
Reynir del Norte - Gítar
Paco Fernández - Dans
Jorge el Pisao - Gítar
Jacób de Carmen - Söngur
Josue Heredia "Cheito" - Slagverk
https://open.spotify.com/album/26bYbTv2WX32nUXmqKIqTH