Tix.is

Event info

Magga Stína flytur lög og ljóð Megasar ásamt hljómsveit skipaðri tónlistarmönnum úr fremstu röð á Græna Hattinum 28. mars.

Það eru þeir Matthías Hemstock, Jakob Smári Magnússon, Daníel Friðrik Böðvarsson og Tómas Jónsson sem munu láta ljós sitt skína með Möggu Stínu á þessum tónleikum.

Tónlist Megasar skipar einstakan sess í íslenskri þjóðarvitund og framlag hans til íslenskrar tónlistarsögu og textagerðar er í einu orði ómetanlegt. Á þessum tónleikum hljóma lög hans og ljóð af löngum og ævintýralega fjölbreyttum ferli – eins og Fílahirðinn frá Súrín, Gamli sorrí Gráni, Tvær stjörnur, auk þess sem flutt verða lög Megasar við nokkra Passíusálma Hallgríms Péturssonar.