Tix.is

Event info

DIMMA heldur sína fyrstu tónleika á árinu í Bæjarbíói, Hafnarfirði en þar hafa þeir áður haldið nokkra af sínum bestu tónleikum.

DIMMA verður með tvenna tónleika laugardaginn 14. mars.

Fjölskyldutónleikar kl. 16:00 - húsið opnar 15:30 - Verð 2.990 kr
Fullorðinstónleikar kl. 20:30 - húsið opnar 19:30 - Verð 4.990 kr 

DIMMU þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarin ár og hafa þeir gefið út fimm breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.

Í lok síðasta árs sendi sveitin frá sér fyrsta lagið með nýrri liðskipan en það var lagið „Þögn“ sem notið hefur talsverðra vinsælda.

Þeir fylgdu því svo eftir með nýja laginu „Almyrkvi“, sem er framlag DIMMU til Söngvakeppninnar 2020.

Eitthvað sem fæstir aðdáendur sveitarinnar áttu von á, enda hefur Söngvakeppnin hingað til varla talist hefðbundinn vettvangur fyrir kraftmiklar rokksveitir í þyngri kantinum til að koma tónlist sinni á framfæri.

Þessi lög verða að sjálfsögðu leikin á tónleikunum ásamt úrvali af eldri perlum sveitarinnar og því ætti enginn rokkunanndi að láta sig vanta á DIMMU í Bæjarbíói.

DIMMA:

Stefán Jakobsson : Söngur

Ingó Geirdal : Gítar

Silli Geirdal : Bassi

Egill Örn Rafnsson : Trommur