Tix.is

Event info

Kvennakórinn Katla töfrar fram sviðsetta tónleika í leikhúsi þar sem hreyft verður við áhorfendum með kröftugum tónlistarflutningi og áhrifaríkri sviðsframkomu. Yfir vötnum mun svífa kyrjandi kvenorka þar sem flutt verður tónlist sem útsett er af konum, tónlist eftir konur eða um konur. Kötlurnar munu taka hittara sem allir þekkja og fluttir hafa verið af Billie Eilish, Röggu Gísla, Björk, Todmobile, Eurythmics, Sigrid, Emilíönu Torrini og svo mætti lengi telja!

Kvennakórinn Katla samanstendur af um 70 sterkum og listrænum konum sem fara ótroðnar slóðir í sköpun sinni. Kórstýrur eru Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir.