Flýtir er mesti óvinur andlegs lífs á okkar dögum. Þú þarft miskunnarlaust að útrýma flýti úr lífi þínu sagði rithöfundurinn Dallas Willard.
Á námskeiðinu Hægjum á, einföldum lífið verður fjallað um hvernig hægt er að útrýma flýti og einfalda lífið.
Á námskeiðinu mun Gunna Stella fjalla um þau atriði sem hún hefur nýtt sér á vegferð sinni í átt að einfaldara lífi síðastliðin ár.
Gunna Stella er heilsumarkþjálfi, kennari og fjögurra barna móðir. Hún sérhæfir sig í því að hjálpa einstaklingum að minnka hraðann, njóta lífsins og finna leiðir til að einfalda lífið.
Miðaverð: 7.900
Nánari upplýsingar á netfanginu gunnastella@gmail.com