Tix.is

Event info

BAKAÐU ÞÍNA EIGIN KRANSAKÖKU

Eins og undanfarin ár bjóðum við upp á hin vinsælu kransakökunámskeið Blómavals.

Fermingarbörnin eru að sjálfsögðu velkomin með.

FYRIRKOMULAG NÁMSKEIÐA

Undir leiðsögn Halldórs Kr. Sigurðssonar bakara og konditor býr hver og einn þátttakandi til 40 manna kransaköku sem hann/hún getur síðan fryst og boðið upp á í fermingarveislunni sinni. Hvert námskeið tekur um tvær og hálfa klukkustund. Þátttökugjald er 8.990 kr. og skráning er hafin á tix.is 

Allt hráefni og bakstur er innifalið í verðinu.

Hægt verður að kaupa auka deig á staðnum til að stækka kökuna. Þátttakendur eru beðnir um að taka með sér ílát undir kökuna og svuntu á námskeiðið.