Tix.is

Event info


DAGSKRÁ KVÖLDSINS:

18:00 – HÚSIÐ OPNAR
19:30 – Bryndís Ásmunds (TINA uphitun)

20:15 – Marc Martel and band.
22:00 – ÁÆTLUÐ LOK

* DAGSKRÁ ER BIRT MEÐ FYRIRVARA OG GETUR RIÐLAST


Um viðburðinn

Queen tónleikaveisla í apríl: Er þetta Freddie Mercury endurfæddur?

Queen aðdáendur nær og fjær. Tónleikar með raddtvífara Freddie Mercury, Marc Martel og hljómsveitinni The Ultimate Queen Celebration, verða haldnir þann 30. apríl 2022 í Laugardalshöll.

Tónleikarnir verða sitjandi og því um takmarkaðan miðafjölda að ræða.

Ef þú sást og heillaðist af kvikmyndinni Bohemian Rhapsody sem tröllreið öllu hér fyrir stuttu þá máttu alls ekki missa af þessari RISA Queen tónleikaveislu! Marc Martel var sá sem léði söngrödd sína til kvikmyndarinnar og ásamt leikaranum Rami Malek sem lék Freddie Mercury, endurholdgaði hann meistarann á ógleymanlegan hátt. Útkoman varð ótrúleg. Það var líkt og Freddie sjálfur með húð, hári og sinni einstöku rödd væri hér mættur í kvikmynd um sjálfan sig.

Nú tekur Marc Martel höndum saman með einni vinsælustu Queen tribute hljómsveit fyrr og síðar, The Ultimate Queen Celebration. Dæmi hver fyrir sig, en það er næstum óhugnanlegt hversu mikið Marc Martel minnir á Freddie!

Fullkominn raddtvífari
Sem raddtvífari Freddie Mercury er þó þrennt sem Marc Martel segist neita að gera fyrir tónleikana. Hann mun ekki klæðast gula jakkanum sem einkenndi Mercury heitinn, hann mun ekki notast við hálfan míkrafón stand og hann mun ekki láta sér vaxa alskegg. Marc Martel syngur með hljómsveitinni The Ultimate Queen Celebration á tvennum tónleikum í í Laugardalshöll apríl.

Sjáðu sjálfa drottningu ballöðunnar, Celine Dion, tárast yfir flutningi Martells á Queen smellinum „Somebody to Love“.

„Ég hélt þetta gæti orðið skemmtileg karíókíbrella“
Marc Martell á dygga stuðningsmenn og aðdáendur út um allan heim og meðal þeirra eru liðsmenn Queen sem hafa lofsamað Marc Martell og segja hann syngja ótrúlega líkt meistaranum. Fyrsti maðurinn til þess að benda á hæfileika Martels, og líkindi raddar hans við hina ómþýðu raust Mercurys, var Glenn Lavender, bassaleikari hljómsveitiarinnar Downhare. Marc tók þessu hrósi með semingi, enda vildi hann allra síst vera ófrumleg eftirmynd stórstjörnu. En svo fór hann að kynna sér betur tónlist Queen í von um að læra eitthvað af meistaranum. „Ég hélt kannski að þetta gæti orðið skemmtileg karíókíbrella,“ segir Marc í viðtali við New York Times sem birt er í heild sinni hér.

Martell heldur áfram: „Ég er ekki frá Bretlandi eins og Freddie og ég er ekki með sömu tennur sem gerir það að verkum að náttúrulega eru essin mín ekki jafn stingandi og hans. En þegar ég er ekki að reyna að hljóma eins og Mercury segist fólk samt sem áður heyra hann í rödd minni. Það er sama hvað ég geri. Ég hef þennan furðulega hæfileia að hljóma eins og hann, af hverju ætti ég ekki að nýta mér það?“

Með raddtvífara Freddie Mercury, Marc Martel í broddi fylkingar, má búast við óviðjafnanlegum tónlistarfagnaði sem enginn unnandi Queen má láta framhjá sér fara.

Love Of My Life - Live from Mexico City (Marc Martel)

Hið stórgóða Tina Turner Power Show með Bryndísi Ásmunds og dönsurum mun hita upp fyrir Marc Martel - Ultimate Queen Celebration.