Tix.is

Event info

Fríða Dís fagnar útgáfu fyrstu sólóplötu sinnar með tónleikum í Berginu Hljómahöll
laugardaginn 15. febrúar 2020.


Fyrsta plata Fríðu Dísar, Myndaalbúm, er væntanleg þann 1. febrúar. Á plötunni er
að finna 8 frumsamin lög með textum á íslensku og frönsku. Í hverju lagi vinnur hún
úr ákveðinni minningu sem raðast saman líkt og ljósmyndir í albúmi. Rödd Fríðu fær
að njóta sín í dreymandi hljóðheimi sem er drifinn áfram af hráum en þéttum
bassaleik hennar sem á augljósar rætur í fyrstu áratugum rokksins.


Með Fríðu koma meðal annars fram Smári Guðmundsson á gítar, Stefán Örn
Gunnlaugsson á píanó og syntha, Kristinn Snær Agnarsson á trommur, Óskar
Guðjónsson á saxófón, Matthías Stefánsson á fiðlu og gítar og Óskar Þór
Arngrímsson sér um áslátt. Platan verður flutt í heild sinni og skyggnst verður á
bakvið lögin og töfrana sem áttu sér stað í upptökuferlinu.


Tryggið ykkur miða.