Tix.is

Event info

ATH - TÓNLEIKUNUM HEFUR VERIÐ FRESTAÐ TIL 22. OKTÓBER 2021. 

NORDIC LIVE EVENT´S KYNNIR MEÐ STOLTI

Risakvöld í Laugardagshöll í boði Krombacher Beer á Íslandi í haust.

Þýsku Technorisarnir í Scooter munu heimsækja klakann aftur í haust og munu þeir halda risatónleika í Laugardalshöll ásamt frábærum gestum.

Frábærir íslenskir og erlendir tónlistarmenn munu sjá um að gera kvöldið ógleymanlegt.

Risasveitin GUSGUS, raftónlistar tvíeykið Club-Dub og DJ Margeir munu keyra partýið upp ásamt leynigesti sem verður kynntur á síðari stigum en þar er rætt um RISA í tónlistarsögunni sem mun trylla fólkið áður en Scooter mætir á svæðið með H.P. Baxxter í fararbroddi og rífur þakið af Höllinni

Sveitin kom hingað til lands 2019 og hélt stórkostlega tónleika fyrir fullu húsi, meðlimir sveitarinnar voru svo ánægðir með heimsóknina að þeir vildu ólmir koma aftur með enn kröftugri og stærri tónleika en síðast, þeir tónleikar voru algjörlega stórkostlegir í alla staði og var stemning ótrúleg í Höllinni.Scooter og gestir munu að gera allt til að gera þessu tónlistaveislu sem eftirminnilegasta í hljóði og ljósum ásamt öllu hinu sem hannog gestir hans bjóða uppá.

Hljóð og ljós ásamt öðrum búnaði verður í sérflokki þar sem sprengjur, leysigeislar og dansarar koma fram með miklum látum.

Scooter og hans fólki hlakka mjög mikið til að koma aftur og skemmta landanum næsta vor, svo ánægð voru þau með móttökurnar 2019.

Laugardalshöll Föstudagskvöldið 22. okt 2021.

Almenn miðasala er hafin!

18 ára aldurstakmark!

Umsjón: Nordic Live Event