Hátíðar- og gleðistund í nánd jólanna!
Fjölbreytt jólatónlist þar sem heyra má keltneska hljóma, íslenska þjóðartóna og ameríska sykursætu.
Söngvar um jólagæsina, rjúpnaveiðar, frið á jörðu, Grýlu, mistilteina, kerti og spil, leikföng í búðum, fannhvíta jörð, jólaboð, minningar og að sjálfsögðu um fæðingu frelsarans.
Léttreyktar kynningar, sögur og spjall mun gleðigjafinn Viðar Guðmundssonar sjá um en hann mun einnig leika á píanó.
Gunnar Hrafnsson leikur á kontrabassa og einnig stíga fram einsöngvarar og hljóðfæraleikarar úr kórnum.
Sérstakur gestur er Gísli Magna söngvari.
Boðið verður upp á kaffi og smákökur í hléi.