Tix.is

Event info

Tónlistarkonan Ásta fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, Sykurbaðs, með tónleikum í Hátíðarsal Menntaskólans í Reykjavík.

Platan Sykurbað verður leikin í heild sinni í fyrsta skiptið og sérstakur gestur á tónleikunum er tónlistarkonan Una Torfadóttir.

Sykurbað hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda, meðal annars fyrir einlæga túlkun og lunknar textasmíðar. Á dögunum hlaut platan tilnefningu til hinna eftirsóttu Kraumsverðlauna.

Miðaverð:
1.500 krónur fyrir 25 ára og yngri
2.000 krónur fyrir alla aðra

Hlekkir á plötuna og myndband:
https://open.spotify.com/album/571kqf9EFLVsPnRZIvM9m5?si=qIzC6HMFSJCPSdno0t3i4A
https://www.youtube.com/watch?v=negPd5Bq1_0