Tix.is

Event info

Hádegistónleikar í Hannesarholti, Reykjavík sunnudaginn 15.12.2019    kl. 12:15

Yann Bertolin heldur vinjettu-píanótóneika kl. 12:15 í Hannesarholti, Grundarstíg 10. 

Þar verða fluttar píanó-perlur, sem heyrast sjaldan á tónleikum, verk eftir tónskáldin; J.S. Bach, L.V. Beethoven, F. Chopin, C. Debussy,I. Albeniz, O. Messian og E. Piaf. Einnig flytur píanóleikarinn stutt tónverk fyrir 6 hendur eftir hann sjálfan.

Í upphafi tónleikanna les Ármann Reynisson, vinjettuhöfundur, sögu um það hvernig leiðir þeirra félaga lágu óvænt saman í tónlistarhöllinni Philharmonie de Paris. Í hléinu les vinjettuhöfundurinn þrjár sögur eftir sjálfan sig sem tengjast jólasveinalandinu inni á Tröllaskaga og hvernig allir jólasveinarnir þrettán kvænast á einu bretti ,,jólasveinkum‘‘ eftir piparstand í 1000 ár.                                                            

Yann Bertolín er fæddur í París 1982. Hann hóf nám í tónlistarskólaskóla sex ára gamall, tók þátt í hæfileikakeppni og komst inn í CNR d´Aubervilliers – La Courneuve í París. Þar var Yann í píanónámi árum saman, hjá nokkrum tónlistarkennurum m.a. prófessor Hubert Guillard sem er á þeim tíma forseti ,,Royaume de la Musique" Radio-France tónlistar-keppninnar. Píanóleikarinn hlaut hin virtu verðlaun ,,Chevalier de la Musique‘‘.

Á námsárum sínum stundaði Yann Bertolin nám í tónvísindum við Edgard Quinet skólann í París. Hann hefur haldið tónleika með fjölbreyttri klassískri efnisskrá í hinum ýmsu tónlistarhöllum í Frakklandi, einnig í kirkjum og á sjúkahúsum, ásamt því að vera undirleikari þekktra einsöngvara. 


Efnisskrá:

Barokk

Prelúdía nr 1 eftir Jóhann Sebastian Bach

Prélúdía nr 2 eftir Jóhann Sebastian Bach

Fúga í D-dúr eftir Jóhann Sebastian Bach

 

Klassík

Fyrsti þáttur úr Pathétique-sónötunni eftir Ludwig Van Beethoven 

 

Rómantík

Prelúdía nr. 4 eftir Frédéric Chopin

Vals ópus 69 Nr. 1 eftir Frédéric Chopin

Næturljóð (nocturne) eftir Frédéric Chopin

 

Spænsk tónlist fyrir stríð

Asturias, Isaac Albeniz

 

Frönsk tónlist

Jardins sous la Pluie eftir Claude Debussy