Tix.is

Event info

Veitingahúsið Apotek kitchen + bar býður upp á skemmtileg kokteila workshop – þar sem þátttakendur læra að búa til kokteila og para kokteila með mat.

Námskeiðin eru gríðarlega vinsæl og alveg frábær skemmtun fyrir einstaklinga og hópa.
Um námskeiðin sjá margverðlaunaðir kokteilbarþjónar Apoteksins og kenna þeir réttu handtökin við gerð klassískra kokteila og leyniblöndurnar bak við verðlaunakokteila Apoteksins.

Smakkaðir eru kokteilar með réttum frá Apotekinu og farið yfir galdurinn að para saman kokteila og mat til að gera góða veislu enn betri.

Réttir sem eru smakkaðir:
-Bleikja á saltblokk frá Himalaya
-Önd&vaffla
-Kolkrabbi
-Tígrisrækja
-Lamba rumpsteik

Námskeiðin eru haldin á fimmtudögum frá kl. 16 -18 og kosta 8.900 kr. á mann.
Aldurstakmark er 20 ár.

Allar nánari upplýsingar má finna á apotek.is og í síma 551-0011.