Tix.is

Event info

"ÚÚÚYEAH SJABBALABBA!
Það verður sannkölluð rokkveisla á Íslenska Rokkbarnum þegar þyngsta band landsins kemur fram í síðasta skipti á þessu háa herrans ári 2019. Á hlaðborði kvöldsins verður þungur taktur borinn fram með gnæfandi trommuslætti, háværum gítarsólóum, spikfeitum riffum og drunandi bassa.
Ásamt Alchemia hlaðborðinu verður borinn fram sérstakur forréttur þegar öðlingarnir í InZeros hefja kvöldið með alveg einstaklega djúsí rokk og róli.
Veislan hefst á slaginu 23:00 og stendur fram eftir kvöldi.
Aðgangseyrir er litlar 1.000 kr. í forsölu á tix.is og 1.500 kr. við hurðina."