Hádegistónleikar Schola Cantorum í Hallgrímsskirkju
Kammerkórinn Schola Cantorum heldur jólatónleika í Hallgrímskirkju föstudaginn 20. desember kl. 12.
Á vetrarsólstöðum flytur Schola Cantorum hugljúfa jólatónlist úr ýmsum áttum. Nýleg íslensk jólalög í bland við önnur vel þekkt, bæði íslensk og erlend munu hljóma og má þar nefna Betlehemsstjörnuna eftir Áskel Jónsson, Stráið salinn í útsetningu John Rutter, Hátíð fer að höndum ein í nýrri útsetningu Auðar Guðjohnsen og Ó, helga nótt eftir Adams. Upplagt tækifæri til að koma við í Hallgrímskirkju í hádeginu, auðga jólaandann og fagna bjartari tíð.
Einsöngvarar eru Hildigunnur Einarsdóttir, Þorsteinn Freyr Sigurðsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.
Tónleikarnir eru hluti af jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju.
Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Miðaverð 3.000 kr.