Tix.is

Event info

Það var árið 1948 er Jóhannes Kjarval var á leið til Borgarfjarðar Eystri að heimsækja æskustöðvarnar sínar, að ferjan við Unaós kom ekki og hann snéri þá við og tjaldaði í fögrum hvammi stutt frá Ketilstöðum í Hjaltastaðaþinghá. Hann tók síðan ástfóstri við þennan fagra hvamm, sem síðan hefur verið kallaður Kjarvalshvammur.

Í myndinni eru leikin atriði sem sýna enn betur Kjarval sem lifandi persónu með tilfinningar og mannlega gæsku. Jón Hjartarson, leikari fer með hlutverk Kjarvals í myndinni.

KJARVAL OG DYRFJÖLLIN - glæný íslensk heimildamynd - frumsýnd 28. nóvember í Bíó Paradís!

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar gilda ekki á þessar sýningar!