Tix.is

Event info

Heimsækjum Jólasveinanna í Dimmuborgum!

Allt frá upphafi hafa þau Grýla og Leppalúði búið í Lúdentsborgum og hafa þau alið af sér 13 jólasveina. Þegar jólasveinarnir fóru að vaxa úr grasi fannst Grýlu og Leppalúða vera farið að þrengjast um sig í sínum vistaverum og strákana var farið að langa að vera út af fyrir sig. Var því ákveðið að fara í landvinning og finna nýtt heimili fyrir afkvæmin. Leitað var út um allan heim, farið til Finnlands, Grænlands og víðar. En þegar allt kom til alls þá var best að vera í nágrenni við mömmu og pabba, Dimmuborgir var tilvalinn staður til að setjast að í.

Frá þeirri stundu hafa jólasveinarnir búið í Dimmuborgum og liðið mjög vel með útsýni yfir hina fögru Mývatnssveit. Í fyrstu voru jólasveinarnir miklir ærslabelgir og stunduðu það að gera prakkarastrik um sveitir landsins en í seinni tíð hafa þeir róast og eru í dag bestu vinir barnanna.

Jólasveinarnir hafa tekið upp þann sið að taka á móti börnum á öllum aldri á aðventunni í Dimmuborgum. Gera þeir það þannig að á ákveðnum tíma eru þeir við hellismunnan sinn og heilsa upp á börnin við stólinn sinn inni á Hallarflöt.

12. desember fara þeir svo að koma til byggða, einn af öðrum og færa góðum börnum gjafir í skóinn. En þeim sem hafa ekki verið góð færa þeir stóra kartöflu.


Komdu og heimsæktu bræðurna í Dimmuborgum á milli kl 11:00 og 13:00 frá og með 30. nóvember til 24. desember.
18 ára og eldri greiða 1.500kr í Grýlusjóð.
12 -17 ára greiða 500kr í Grýlusjóð.
Frítt fyrir börn.

Hið árlega jólabað Jólasveinanna í Dimmuborgum!

Hið árlega jólabað Jólasveinanna í Dimmuborgum verður þann 7. desember kl 16:00. Bræðurnir eru nú misglaðir með þessa hefð og því um að gera fyrir alla að mæta og taka þátt í fjörinu. Sama dag verður markaðsdagur í Jarðböðunum við Mývatn frá kl. 14-18. Þar verður í boði ýmislegt sem tilvalið er að setja í jólapakkann. Afurðir beint frá býli hér frá Norðurlandi! 

Jólasveinarnir í Dimmuborgum eru líka í fullu fjöri þennan dag að undirbúa sig fyrir jólin. En þeir ætla að gefa sér tíma til að taka á móti gestum, spjalla, syngja, segja sögur, fara í leiki, flokka “óþekktarkartöflur“ og margt fleira skemmtilegt á milli kl 11:00 og 13:00 á Hallarflötinni í Dimmuborgum.

Aðventuhátíð og hið árlega jólabað
Miðaverð:
3500kr fyrir fullorðna - 18 ára og eldri - aðgangur í Dimmuborgir og Jarðböðin
2000kr fyrir 12-17 ára - aðgangur í Dimmuborgir og Jarðböðin
frítt fyrir börn