Tix.is

Event info

AUKATÓNLEIKAR  - AUKATÓNLEIKAR

KK og Gaukur hafa verið á ferð um landið í haust. Íslendingar hafa tekið þeim fagnandi og vegna fjölda áskorana hafa þeir bætt við þrennum tónleikum.

Þeir munu spila úrval af lögum KK og slatta af bluegrass lögum sem þeir félagar hafa verið að æfa upp á síðkastið, landsmönnum til mikillar gleði.
KK er landsmönnum kunnur en Gaukur er að hasla sér völl. Hann hefur m.a. verið að spila á munnhörpu og slidegítar með Kaleo undanfarið. Með KK verður hann töluvert að spila slide gítar eða Hawaii gítar eins og það er líka kallað og raddar í bluegrass stíl og munnhörpurnar verða ekki langt undan hjá þeim báðum.

Og allt verður þetta flutt gegnum 1 hljóðnema.

Það verða ekki fleiri tónleikar á þessu ári.

Föstudagur 22. nóvember, kl 21:00 - Stofan Café, Reykjavík
Laugardagur 23. nóvember, kl 21:00 - Fish House, Grindavík