Tix.is

Event info

Þann 15 febrúar mun Katrín Ýr í samvinnu við VOX Collective flytja lög söngkonunnar Adele á Hard Rock Café.

Á tónleikunum munum þau taka lög frá öllum þrem plötum Adele: 19, 21 og 25, auk annara laga frá tónleikum og öðrum live flutningum.

Síðustu tvennir tónleikar seldust upp í forsölu því hvetjum við ykkur til að næla ykkur í miða sem fyrst!

Katrín er Reykvíkingur en hefur búið í London og starfað við tónlist síðastliðin 13 ár. Á þeim tíma hefur hún starfað við ýmis verkefni líkt og tónlistarhald, upptökur, útsetningar, raddþjálfun og fleira.
Hún hefur sett saman ýmsa tónleika með VOX Collective, og hefur þar á meðal heiðrað tónlistarmenn/konur á borð við Madonna, Carole King, Outkast, Nirvana ofl.
Katrín hefur einnig starfað með fjölda tónlistarmanna á borð við Jamie Cullum, Ray BLK, Tim Rice, Aggro Santos, Senser, Liam Howe (Sneaker Pimps) ofl.

Hljómsveitina skipa:
Katrin Yr - Söngur
Helgi Reynir - Gítar og raddir
Birgir Kárason - Bassi og raddir
Ed Broad - Trommur
Glenn Callaghan - Hljómborð


Hægt er að fylgist með æfingum ofl á:

Instagram: VOXCollectiveLondon
                  Introducing Kat
Snapchat: IntroducingKat
Facebook: VOX Collective
Katrín - IntroducingKat

Húsið opnar kl 21.00
tónleikar hefjast kl 22.00
miðaverð: 3.900kr (4.500 við hurð)