Tix.is

Event info

Árlegt kvennakvöld Víkings verður haldið laugardaginn 2. nóvember 2019. Konur hverfisins ætla að fjölmenna í stóra salinn í Víkinni en honum verður breytt í huggulegan sal með uppdekkuðum borðum, flottu sviði og að sjálfsögðu stóru dansgólfi. Hvítvínskonan kíkir í heimsókn, Karlakórinn Esja þenur raddböndin og Nonni Diskó sér um stemmninguna á dansgólfinu fram eftir kvöldi.

Veislukokkar frá Múlakaffi bjóða upp á glæsilega kalkúnaveislu þar sem verður meðal annars boðið upp á kalkúnabringur með mangógláa, brokkolíni gulbeður og aspas, stökkar kartöflur gremolata og parmesan, bakað blómkál með beikondöðludressingu, sætar kartöflur, villisveppasósu og spínatdöðludressingu og ekta ítalskt tiramisu í eftirrétt. 

Miðaverð er 7.900 kr. í forsölu til og með 31. október, en hækkar í 8.900 kr. eftir það.