Tix.is

Event info

Sýningunni hefur verið aflýst

Eftir frábærar viðtökur verður söngleikurinn We Will Rock You settur á svið í Hörpu þann 27. febrúar 2020!
Með aðalhlutverk í sýningunni fara: Ragga Gísla, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Kristinn Óli Haraldsson (Króli), Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Katla Njálsdóttir, Berglind Halla Elíasdóttir og Páll Sigurður Sigurðsson

Söngleikurinn We Will Rock you var frumsýndur árið 2002 á West End og sýndur fyrir fullu húsi til ársins 2014 og sló aðsóknarmet leikhússins Dominion Theatre.

Leikritið, sem samið era f Ben Elton og Queen, hefur verið tilnefnt til Olivier verðlaunanna í Englandi, sem þykir einn mesti heiður í þarlendu leikhúsi. Þá hefur hann einnig verið settur á svið á Broadway í New York, í Ástralíu, Rússlandi, Japan, á Spáni og víðar.

Queen hefur notið gríðarlegra vinsælda síðustu misseri eftir sýningu kvikmyndarinnar Bohemian Rhapsody sem sýnd var hér á landi á síðasta vetri og var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna og Golden Globe.

Uppsetning We Will Rock You hér á landi hlaut frábæra dóma þegar hún var frumsýnd síðastliðinn ágúst.

Athugið að um takmarkaðan sýningarfjölda er að ræða og að sýningin fer fram á íslensku.