Tix.is

Event info

Í desember halda bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta sinn sem bræðurnir sameina krafta sína á alvöru tónleikum á árinu og það verður öllu til tjaldað. Strákarnir eru þarna að halda tónleika í sínum heimabæ og að sjálfsögðu varð hið fornfræga Bæjarbíó fyrir valinu. 

Ekkert aldurstakmark verður inn á fjölskyldutónleikana enda um góða fjölskyldustemningu að ræða. Á kvöldtónleikana er 20 ára aldurstakmark.

Á dagskránni verða lög eftir þá félaga sem þeir koma til með að flytja í sitt hvoru lagi og saman, ásamt öðru efni. Þetta eru tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara enda eru þeir bræður þekktir fyrir góða nærveru og mikið stuð.

Tímasetningar tónleikanna:

Föstudagurinn 13. des kl. 20:00
Föstudagurinn 13. des kl. 23:00
Laugardagurinn 14. des kl. 14:00 - fjölskyldutónleikar
Laugardagurinn 14. des kl. 16:00 - fjölskyldutónleikar
Laugardagurinn 14. des kl. 20:00
Laugardagurinn 14. des kl. 23:00
Sunnudagurinn 15. des kl. 14:00 - fjölskyldutónleikar
Sunnudagurinn 15. des kl. 16:00 - fjölskyldutónleikar