ATH! Vegna veðurs verða tónleikarnir sem áttu að vera í kvöld, þriðjudag 10. desember fluttir til 19. desember kl. 20.
Að venju verða Sætabrauðsdrengirnir með jólatónleika í Salnum í Kópavogi. Að þessu sinni verða tónleikar þ. 8, 9, 11 og 19. desember kl. 20:00. Þeir sem hafa verið á tónleikum drengjanna hafa orðið vitni að frábærum flutningi enda hafa þessir söngvarar verið meðal okkar bestu og þekktustu listamanna um árabil. Áheyrendur vita einnig að þótt hátíðleikinn og gæðin séu í fyrirrúmi þá er stutt í grínið og gamanið. Tónlistin er fengin víða að en Halldór Smárason píanóleikari hefur útsett megnið af tónlistinni sem flutt verður af einstöku listfengi.