16. desember - Uppselt
17. desember - Örfá sæti laus
Sigurður Guðmundsson & Sigríður Thorlacius -
Hátíðartónleikar
"Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, þau Sigríður Thorlacius og
Sigurður Guðmundsson, halda sína árlegu jólatónleika í Eldborgarsal Hörpu þann
16. desember. Sigríður og Sigurður munu ásamt glæsilegri stórhljómsveit sinni
reiða fram sérstaka hátíðardagskrá í anda jólanna.
Sigurður og Sigríður halda hátíðartónleika sína nú sjötta árið í röð og er þeir
nú þegar orðnir að ómissandi þætti margra í aðdraganda jólanna.
Þau Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson þarf vart að kynna en þau hafa
lengi verið á meðal þekktustu og dáðustu söngvara landsins. Bæði hafa þau gert
garðinn frægan með hljómsveitum sínum, Sigríður með Hjaltalín og Sigurður með
Hjálmum, en jafnframt státa þau af glæstum sólóferlum.
Það eru einmitt tvær hljómplötur þeirra sem verða í forgrunni á tónleikunum í
Hörpu – jólaplöturnar Nú stendur mikið til með Sigurði og Jólakveðja með
Sigríði. Auk laga af þessum plötum verða á dagskránni hátíðarlög úr öllum áttum
sem Sigurður og Sigríður munu syngja bæði saman og í sitthvoru lagi.
Hér verður um einstaka kvöldstund að ræða þar sem reynt verður að nálgast hið
sanna og hátíðlega inntak jólanna. "