Tix.is

Event info

Það er hér með gjört heyrinkunnugt að tónleikar Prins Jóló verða haldnir á Græna hattinum föstudagskvöldið 6. desember. Í för með Prinsinum verða Benedikt Hermann Hermannsson og Björn Kristjánsson. Saman ætla þeir að leika skástu lög Prinsins í hátíðlegum útgáfum og dusta rykið af nokkrum þolanlegum jólalögum úr eigin smiðju. Taktu 6. desember frá til að eiga heilaga stund með hirðinni.