Tix.is

Event info

Eftir 27 uppseldar sýningar á uppistandinu Varist eftirhermur víða um land mætir Sóli Hólm til Bolungarvíkur og stígur á svið í félagsheimilinu fimmtudaginn 17. október.

Titill sýningarinnar er lýsandi þar sem fáir hér á landi geta brugðið sér í líki jafnmargra þjóðþekktra Íslendinga og Sóli Hólm.

Sóli Hólm sló í gegn á síðasta ári þegar hann setti sína fyrstu uppistandssýningu á svið í byrjun árs. Sýningarnar áttu upphaflega að vera fjórar en urðu á endanum 35. Þà sýningu notaði Sóli meðal annars til að gera upp baráttu sína við krabbamein sem hann sigraðist á árið 2017.

Nú einbeitir Sóli sér að því sem hann gerir best og það er að herma eftir.

Húsið opnar kl 20:00.

Miðasala á tix.is og við hurð!

Aðgangseyrir kr 3.990-