Tix.is

Event info

Það er ekki að ástæðulausu sem Ljótu hálfvitarnir eru oft kallaðir haustboðinn hrjúfi. Það man reyndar enginn af hverju en sennilega er það ekki vegna þess að þeir halda gjarnan tónleika síðla hausts því það meikar engan sens. En alla vega, nú er einmitt komið að því, hálfvitahelgi á Hard Rock Cafe, ekkert verður slegið af og allt spilað í botni þar til síðasta laufblaðið fellur af síðasta trénu.