Tix.is

Event info

Þann 19. September verður útgáfu hljómplötunnar Paradox fagnað með tónleikum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Paradox er sjötta plata Andrésar Þórs og inniheldur 9 frumsamda jazzópusa sem sækja áhrif úr poppi, jazzi og þjóðlagatónlist auk ýmissa skammtafræðilegra tilvitnanna. Kvartettinn er skipaður hljóðfæraleikurum frá Íslandi og New York en það eru þeir Andrés Þór sem leikur á gítar, Agnar Már Magnússon á píanó, Orlando Le Fleming á bassa og Colin Stranahan á trommur.