Tix.is

Event info

Hljómsveitin White Lies kemur til Íslands í tilefni af 10 ára afmæli fyrstu plötu sveitarinnar – To Lose My Life. Bretarnir halda upp á frumburðinn í Eldborgarsal Hörpu mánudaginn 9. desember og munu þeir flytja plötuna í heild sinni á tónleikunum.

Hljómsveitirnar Boniface og Kontinuum munu sjá um að hita salinn upp fyrir White Lies.

Síðast (og í eina skiptið) kom hljómsveitin til Íslands á Airwaves- hátíðina árið 2008 en þá var stutt í að To Lose My Life kæmi út. Platan fór beint í efsta sætið í Englandi og lög eins og Farewell to the Fairground og To Lose My Life urðu gríðarvinsæl um allan heim. Síðan þá hefur White Lies gefið út fleiri stórgóðar plötur eins og t.d. Ritual og á þessu ári gáfu þeir út fimmtu plötu sína- Five – sem hefur fengið afbragðsgóða dóma og viðtökur.

White Lies hefur alltaf þótt gríðarflott á tónleikum og því má búast við mjög svo skemmtilegri kvöldstund í desember í Eldborg.

Umsjón: Tónleikur ehf