Tix.is

Event info

Peter Máté flytur öll píanóeinleiksverk Johns Speight á einleikstónleikum í Hannesarholti miðvikudaginn 11.september kl.20.

5 pieces (1968)

Deux Hommages (1978)

3 prelúdíur (1981)

Kvöldljóð (1996)

Manhattan Moments (1997)

Sonata per pianoforte (1998)

Hommage á Brahms (2018) - frumflutningur

Það er sjaldgæft að heilir tónleikar séu tileinkaðir einu nútímatónskáldi. Hér flytur Peter Máté sjö verk fyrir einleikspíanó eftir John Speight en verkin spanna fimm áratugi. Því má segja að um sé að ræða þverskurð af tónsmíðaferli John Speight, elsta verkið samið á stúdentsárunum tónskáldsins og það yngsta, sem er jafnframt nýjasta verk John Speight, var samið 2018 og verður frumflutt á þessum tónleikum. Peter hefur flutt mörg píanóverka Johns Speight í gegnum tíðina en síðastliðin tvö ár hefur hann unnið markvisst að því að læra öll píanóverk tónskáldsins.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði.

 ***

 John Speight fæddist á Englandi. Hann stundaði söngnám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum á árunum 1964-72. Jafnframt lagði hann stund á tónsmíðar við sama skóla, undir handleiðslu B. Orr, og var í einkatímum hjá hinu þekkta tónskáldi Richard Rodney Bennett. Árið 1972 fluttist hann til Íslands og hefur verið búsettur hér síðan og er íslenskur ríkisborgari.

Eftir John liggja margs konar tónsmíðar, stórar og smáar, allt frá einleiks- og einsöngsverkum upp í hljómsveitarverk. Önnur sinfónía Johns Speight var flutt á alþjóða tónlistarhátiðinni ISCM - International Society for Contemporary Music árið 1992 og fimm sinnum hafa tónsmíðar hans verið fluttar á Norrænum músíkdögum, þar af tvær sinfóníur ásamt kammerverkum. Árið 1995 fékk John Speight listamannalaun til þriggja ára og dvaldi þá um eins árs bil í Bandaríkjunum þar sem hann samdi nokkur verk, meðal annars þriðju sinfóníu sína. Lagaflokkur við ljóð Emily Dickinson, The Lady in White var frumfluttur í New York árið 1997, og Sam‘s Mass fyrir blandaðan kór, sólósópran og óbó sem samin var til minningar um ungan vin tónskáldsins sem lést af slysförum var frumflutt í Bretlandi árið 1998. Schola Cantorum frumflutti verkið á Íslandi, í Hallgrímskirkju í janúar 1999.

John Speight var kosinn formaður Tónskáldafélags Íslands 1992 og gegndi hann því embætti til ársins 1995. Hann hefur haldið fjölda einleikstónleika, komið fram með mörgum kammerhópum og sungið ýmis óperuhlutverk á íslensku sviði, bæði í Þjóðleikhúsinu og Íslensku óperunni, auk þess sem hann hefur kennt söng og tónfræði við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

Peter Máté píanóleikari er af ungversku bergi brotinn en hann er fæddur í Rožnava í Tékkóslóvakíu. Hann hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Peter stundaði píanónám frá unga aldri en lauk einleikara- og kennaramastersgráðu úr Tónlistarakademíunni í Prag. Á námsárunum vann hann til margra verðlauna í heimalandi sínu og síðar í alþjóðlegum keppnum, svo sem í Vercelli og Enna á Ítalíu á árunum 1986 og 1989.

Hann hefur komið fram sem einleikari með mörgum helstu hljómsveiturm heimalands síns en einnig með Útvarpshljómsveitinni í Berlín og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Peter hefur flutt og frumflutt mörg íslensk píanó- og kammerverk og haldið fyrirlestra um íslenska píanótónlist erlendis svo sem í Finnlandi, Rússlandi, Austurríki og Slóvakíu. Árið 2012 frumflutti Peter Píanókonsert Jóns Ásgeirssonar ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Peter hefur haldið fjölmarga einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum víða á Íslandi með tónlistarhópum á bovð við Tríó Reykjavíkur og Kammertríó Kópavogs og farið í tónleikaferðir til Frakklands, Bretlands og Bandaríkjanna auk austur-Evrópulanda.

Peter er prófessor við Listaháskóla Íslands og kennir einnig við Menntaskólann í tónlist. Hann hefur haldið masterklassa við fjölda erlendra háskóla og tónlistarskóla á Íslandi.