Tix.is

Event info

Sváfnir Sig gefur út aðra sólóplötu sína síðar í haust en tónlist af henni er þegar farin að hljóma á öldum ljósvakans og lagið Fólk breytist hefur átt miklum vinsældum að fagna í sumar.
Árið 2016 gaf Sváfnir út plötuna Loforð um nýjan dag með samnefndu lagi að ógleymdum Malbiksvísum sem nutu mikillar hylli hinna vinnandi stétta, ekki síst járnabindingamanna og ljósmæðra.

Með Sváfni á þessum tónleikum leikur einvala lið tónlistarmanna:
Flosi Þorgeirsson: bassi
Kristján Freyr Halldórsson: trommur
Stefán Magnússon: gítar
Pálmi Sigurhjartarson: hljómborð