Tix.is

Event info

Miðaverð 3500 kr. en FRÍTT fyrir 16 ára og yngri!

ATH: Til að bóka miða fyrir 16 ára og yngri þarf að hafa samband við miðasölu MAk, í síma 450-1000 eða á midasala@mak.is.


Leikfélag unga fólksins er nýtt atvinnuleikhús á Akureyri fyrir ungt fólk á aldrinum 13-16 ára þar sem þau fá tækifæri til að vinna í faglegu umhverfi og segja sögur úr sínum raunveruleika.

Verkið sem tekið verður fyrir í sumar fjallar um þær margslungnu hindranir og áskoranir sem móta sjálfsmynd unglingsáranna eins og t.d. einelti, vinátta, ástin, kvíði, líkamsímynd, kynvitund, samfélagsmiðlar og almenn samskipti við jafningja sem og fullorðna.

Við vonum að verkefnið stuðli að lýðræðislegri virkni barnanna í samfélaginu og verði þar með hluti af forvarnarstafi þar sem þessi aldurshópur fær tækifæri til að láta til sín heyra og tjá sig um þau málefni sem liggja þeim á hjarta.