Tix.is

Event info

Fyrsta sýning 14. september 2019
Barnasýning


Sýningin sem hefur farið sigurför um heiminn snýr aftur á svið!


Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er unnin með óvenjulegri aðferð þar sem sagan í verkinu fær að kvikna út úr efniviðnum sem notaður er í sýningunni. Lífið fjallar um sköpunarkraft, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið er með mold. 

Lífið hefur hlotið einróma lof áhorfenda og gagnrýnenda, jafnt á Íslandi sem erlendis.

Verkið hefur m.a. verið sýnt í Kína, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og á Möltu og verða örfáar sýningar í Tjarnarbíói í haust.  

Lífið var valin besta barnasýningin ársins 2015 á Grímunni – Íslensku sviðslistaverðulaununum, auk þess sem leikhópurinn Tíu fingur var valinn Sproti ársins 2015. Sprotinn er veittur einstaklingi eða hópi sem þykir sýna einstakan frumleika og framúrskarandi nýbreytnií sköpun sinni í sviðslistum. 

 

„Það er allt fallegt við þessa sýningu. Allar stjörnurnar í húsinu!“  
G.S.E. - Djöflaeyjan


„Lífið er yndisleg sýning!“  
S.B.H. - Morgunblaðið


„Það verður seint fullþakkað að til eru listamenn sem bjóða yngri börnum leikhússupplifun sem er valkostur við hraðann, hávaðann og íburðinn í stóru barnasýningunum.“
D.K. - Hugrás

 

Höfundar: Leikhópurinn Tíu Fingur 
Listrænir stjórnendur: Helga Arnalds og Charlotte Böving
Leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson
Tónlist: Margrét Kristín Blöndal 
Ljósahönnun: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tæknimenn: Arnþór Þórsteinsson og Hafliði Emil Barðason
Styrktaraðilar: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Sviðslistasjóður, Starfslaunasjóður listamanna og Reykjavíkurborg